Tanzania

Hildur i Afriku

01.10.2007 15:33:28 / jungleboogie

Aldrei aftur ugali...

A morgun fljugum vid heim. Vid fljugum klukkan niu og lendum i London klukkan fjogur a stadartima. Holdum afram til Kaupmannahafnar og verdum thar klukkan tiu um kvoldid.

 Svo vill til ad eg a afmaeli a morgun :D Vid aetlum ad halda upp a thad i fluvelinni med kampavini og kaviar. Planid er ad gera flugfreyjunum ljost ad um afmaeli se ad raeda thannig ad thaer faeri okkur yfir a Business ;)

Frekar sorglegt ad fara heim. Madur var einmitt farinn ad venjast thvi ad vera herna og tha a madur bara ad fara strax aftur heim i kuldann. Eg sakna thess samt ad vera kalt og geta farid i jakka og peysur ;) Og eg hlakka til ad sja alla!


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 06:21:07 / jungleboogie

Fallhlifastokk yfir Kilimanjaro

Daginn eftir ad vid heimsottum Maasaithorpid keyrdum vid til litils baejar vid raetur Kilimanjaro. Baerinn heitir Moshi og thar forum vid i fallhlifastokk. Vid forum i oversize litrikan galla og settumst inn i litla rellu asamt laerdum fallhlifastokkvara og fallhlifastokksljosmyndara, ein i einu thar sem rellan var of litil fyrir fleiri. Eg vissi ad thetta vaeri allt saman voda oruggt, thannig ad eg var ekki hraedd um ad eitthvad faeri urskeidis med bunadinn. Eg var hins vegar hraedd um ad eg myndi verda svo hraedd ad eg myndi fa hjartaslag og deyja ur hraedslunni einni saman. Thad gerdist sem betur fer ekki. Thetta var aedislegt. Eg hoppadi med fallhlifastokkvaragaur fra Caracas, Venezuela sem hefur haft thad ad atvinnu i 10 ar ad hoppa ut ur flugvelum med folk. Hann hoppar ut ur flugvel nokkrum sinnum a dag!

Vid flugum haerra og haerra, upp i 9000 fet og flugmanninum fannst voda snidugt ad strida mer med alls konar dyfum og gera mig enn hraeddari. Thegar vid vorum komin nogu hatt opnadi ljosmyndarinn hurdina. Thad var held eg versta augnablikid. Eg meina, hver opnar hurdina thegar madur er lengst upp i loftinu? Madurinn hlaut ad vera brjaladur. Svo klifradi hann ut ur flugvelinni, sem var enn verra fra minu sjonarhorni. Thar naest kom thad allra versta. Fallhlifastokkvarinn minn sagdi mer ad fara ad hurdinni! Eg ihugadi hvada faranlegu adstaedur eg hefdi komid mer i og hlyddi. Vid vorum kyrfilega fest saman med krokum og sem betur fer gat hann sed um ad taka stokkid og eg flaut bara med. Annars held eg ad eg hefdi aldrei hoppad. Vid duttum nidur med 220 km hrada og eg oskradi. Thad heyrdist samt ekki fyrir vindinum. Svo allt i einu var eg ekkert hraedd lengur. Thetta var bara gaman. Eftir 30 sekundur kippti gaurinn i snuru og vid snarbremsudum. Thad var alveg eins og vid hefdum gjorsamlega stoppad i midju lofti. Hva, erum vid ekki a leidinni nidur? hugsadi eg. Svo attadi eg mig og for bara ad njota utsynisins. Kilimanjaro, Moshi og slettur Afriku langt, langt fyrir nedan. Fallhlifastokkvarinn minn var hinn fagmannlegasti og sagdi ad nu gaetum vid slappad adeins af. Hann tok af mer hjalminn og tok teygjuna ur harinu a mer og tok nokkrar myndir af okkur med myndavelinni sinni. Vid svifum nidur i ca. 7 minutur og eg fekk ad styra. Thetta var thad gedveikasta sem eg hef upplifad.

Eftir thetta brjalaedi forum vid heim til Dar. Eg fekk sidan malariu i viku. Eftir malariusottina voru adeins tvaer vikur eftir af kennslu i barnaskolanum, thetta er buid ad lida otrulega hratt. A midvikudaginn var sidasti dagurinn minn i skolanum og vid heldum party. Eg gaf krokkunum kanelsnuda og nammi og bornin fengu blodrur i kvedjugjof. Erick, skolastjorinn ungi, hafdi pantad ljosmyndara til ad taka myndir af okkur. Vid forum ut i leiki med bornunum og svo sogdum vid bless og thau foru heim.

Tha budu Erick og Albert (kennararnir, sem eru braedur) mer heim til sin thar sem eg hitti mommu theirra og var bodid upp a ugali, baunir, sodid gras og steiktan fisk sem var mjog godur. Eftir hadegi var rodin komin ad storu krokkunum. Vid lobbudum aftur i skolann og thegar thau voru buin med verkefnin baud eg theim lika upp a kanelsnuda og ymis godgaeti. Thau fengu lika blodrur og eg syndi theim bok med myndum fra Islandi.  Allir foru gladir heim og thetta var bara hinn besti dagur. Eg a eftir ad sakna litla skolakofans mins undir palmatrjanum.

Daginn eftir seinasta skoladaginn forum vid hvitu skvisurnar aftur til Zanzibar og verdum her i frii i eina viku. Vid faum timann til ad lida med thvi ad liggja a strondinni, bada okkur i graenblau hafinu og lesa skvisublod. Eg les tho lika Solku Volku, eins langt fra umhverfi theirrar sogu og komist verdur.

Vid forum heim til Dar es Salaam a fimmtudaginn og a fostudaginn aetlum vid ad halda upp a afmaelid mitt saman. Mette fer svo heim 30. september og vid hinar trjar forum saman heim 2. oktober, a afmaelisdaginn minn :D Planid er ad koma flugfreyjunum i skilning um ad eg eigi afmaeli i von um ad thaer faeri okkur yfir a fyrsta farrymi ;) Thegar vid lendum loksins i Kaupmannahofn kemur mamma min thangad ad taka a moti mer :) Vid aetlum ad spoka okkur saman i Koben i trja daga eins og ekta skvisumaedgur. Svo komum vid heim saman fostudagskvoldid 5. oktober.

Set inn fleiri myndir eins fljott og eg get!


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 13:36:47 / jungleboogie

Safari

Jaeja, tha erum vid komnar heim ur safari! Reyndar komum vid heim ur safari fyrir longu, en eg er buin ad liggja heima med malariu sidan thannig ad eg hef ekkert getad bloggad. En nuna er mer batnad og aetla mer ad lata gamminn geysa.

Vid logdum af stad a manudagsmorgni og tokum rutu til Arusha i Nordur- Tanzaniu. Ferdin tok ca. atta klukkustundir. I Arusha sotti leidsogumadurinn Edmund okkur. Hann reyndist vera hid mesta krutt, mjog bangsapabbalegur. Vid vorum i eina viku og forum i tvo thjodgarda, fyrst i Lake Manyara, thar sem vid hittum apa, giraffa, fila, antilopur og flamingofugla. Daginn eftir forum vid i Ngorongoro Crater, sem er gamall risastor eldfjallagygur. Thegar vid vorum rett komin inn i gardinn blasti vid okkur ljonynja. Hun sat sallaroleg vid veginn og horfdi a okkur, eins og hun vaeri ad bjoda okkur velkomin i riki sitt. Vid keyrdum  adeins lengra og tha var madurinn hennar maettur, Mufasa sjalfur. Hann var jafnvel enn tignarlegri en hun med storan brunan makka, og stod og horfdi nidur a okkur. Vid keyrdum lengra nidur i dalinn og saum sebrahesta, gnyi, flodhesta, antilopur og fila. Svo komum vid ad vatnsboli thar sem nokkrar ungar ljonynjur lagu i solbadi. Eftir sma stund risu thaer a faetur og gengu til okkar. Thad var nefnilega hjord af sebrahestum hinum megin vid jeppana og thaer notudu jeppana okkar sem felustad a leidinni a veidar. Thaer komu svo nalaegt ad eg hefdi getad klappad theim. Thad eina sem hindradi mig voru thjodgardareglur og ast a eigin lifi...

Thridja daginn heimsottum vid maasaithorp. Maasaiarnir eru aettbalkur folks sem lifa enntha eins og thau hafa alltaf gert. Eina breytingin sem thau hafa tekid til sin fra nutimanum eru koflott teppi sem thau klaedast i stadinn fyrir skinnpjotlurnar fra thvi i gamla daga. Thau eiga lika nokkra plastbala til ad thvo thvott og nokkra rosotta tebolla. Thratt fyrir ad bua svona frumstaett eiga margir theirra farsima og gomul tolvuur.

Thorpid er girt thykkri girdingu ur thyrnirunna. Fyrir innan standa nokkrir kringlottir kofar ur thurrkudum kuaskit med thokum ur strai. Inni i thorpinu er onnur thyrnigirding fyrir kyrnar og ein fyrir geiturnar. Vid fengum ad kikja inn i einn kofann. Thad voru engir gluggar thannig ad thad var myrkur inni kofanum. I midju hans var eldstaedi thar sem logadi litill eldur sem gaf fra ser sma glaetu. I einu herbergi a staerd vid kustaskap svafu mamman og bornin og i odru jafnstoru herbergi svaf pabbinn. Rumin voru ur skinni. I litlum skap var kalfur, af einhverjum astaedum ala thau kalfana upp inni i husunum.

Tegar vid vorum buin ad skoda husid tokum vid myndir og keyptum ymsa skartgripi af teim. Svo benti einn maasaiinn mer ad koma med ser og syndi mer inn i einn kofann. I dyragaettinni sat gomul kona og fyrir framan hana la daud geit sem var buid ad skera skinnid af og gamla konan og onnur yngri satu og gaeddu ser a hraum innyflunum! Sjitt.

Eftir thetta skemmtilega atvik byrjadi gamanid. Vid vorum leidd fyrir utan thorpid thar sem var buid ad kveikja bal. Thar attum vid ad fa ad snaeda med karlmonnunum, thvi karlmenn og konur borda ekki saman, en gestir fa thann heidur ad borda med karlmonnunum. Their slatrudu geit og eg ihugadi ad gerast graenmetisaeta.

Verd ad fara en mun skrifa fljott aftur.

Vona ad allir hafi thad gott!


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 14:48:15 / jungleboogie

Mzungu

I gaer thvodi eg oll fotin min i bala fyrir utan husid okkar, thangad til ad eg var komin med sar a vinstri hendina, sem eg hafdi notad sem thvottabretti.

Eg keypti mer bol um daginn sem kostadi 70.000 tanzaniska shillinga, tad eru ca. 3500 isl. kr. Daginn eftir komst eg ad tvi ad manadarlaunin hennar Getrude eru 70.000 Tsh! Spaid i tvi.

Gamli afinn okkar sem atti einu sinni fimm konur er dainn. Hann andadist a sunnudagsmorguninn i ruminu sinu. Fjolskyldan er oll farin til gamla torpsins teirra til ad halda jardarfor. 

Eg i dala-dala asamt manni med haenuna sina.

Folk rydst i ofbodi inn i dalann likt og heimsendir vaeri i nand.


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 11:50:29 / jungleboogie

Malaria

 

La i ruminu alla vikuna med malariu a haesta stigi. Pabbinn minn sagdi ad venjulega fengi folk med malariu a haesta stigi ofsjonir og vaeri lagt inna spitala og gefid kinin i aed. Eg er tvi mjog fegin ad eg keypti thessar malariupillur, thaer draga nefnilega ur einkennunum. Thannig ad eg la bara i ruminu med hita og kvef. 

A fimmtudagskvoldid var galdralaeknir hverfisins med athofn rett fyrir utan gluggann okkar. Eg veit ekki nakvaemlega hvad folst i thessari athofn. Rikke telur ad hann hafi verid ad reka illa anda ut ur folki. Allavega voru svakaleg laeti i theim. Folkid song furdulega songva og gaf fra ser vaegast sagt skritin hljod.

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 15:01:55 / jungleboogie

Spaghetti og baunir

Getrude ad kenna

I gaer fengum vid spaghetti med baunum. Alltaf batnar tad... :)

Eg var ad komast ad tvi ad gamli litli threytti afinn a heimilinu, pabbi "mommu" okkar,  atti i sina tid fimm konur! Spaid i tvi. Engin furda ad hann se svona luinn.

 A laugardaginn forum vid a tonleika utvarpstodvarinnar FM Radio (frumlegt) tar sem ymsir bongo flavour listamenn letu i ser heyra. Bongo Flava er afriska svarid vid nutima blokkutonlist, eins konar hip hop/r'n'b i afriskum stil. Bongo er slangur fyrir Dar es Salaam og tydir heili, tvi tad tarf heila til ad lifa af i ghettoinu. Vid skemmtum okkur agaetlega tangad til ad rafmagnid for... :) Ja, tetta gerist bara i Afriku. Ta komu tveir vingjarnlegir, heyrnarlausir gaurar og kenndu mer swahili taknmal og stafrofid. Ansi frodlegt. Eftir ad eg hafdi stafad nafnid mitt fyrir teim baru teir tad mun betur fram en flestir utlendingar sem eg hef hitt.

A sunnudaginn forum vid a flottasta stadinn i Dar: Kunduchi Beach Resort. Tetta er faranlega flott hotel sem liggur ut ad strondinni. Tad kostar 5000 tanzaniska shillinga, sama sem 200 isl kr, ad komast inn og fa ad liggja a legubekk vid sundlaugina undir palmatrjam, tar sem tjonar ganga um beina og dekra mann i hud og har.

Tarna lagum vid allar fjorar og nutum solarinnar og eg las Harry Potter and the Deathly Hallows sem mer tokst ad finna i enskri bokabud i midbaenum. Vid bordudum hadegismat a veitingastadnum tarna, tad var girnilegt hladbord og i fyrsta skipti i mjog langan tima fengum vid alvoru salad, beinlausan fisk og rosa gott kjott. Eg hef aldrei verid svona hamingjusom yfir ad fa ad borda venjulegan mat:D.

Kennslan gengur bara vel. Eg kenni Nursery School, 3 - 6 ara krokkum,  a hverjum morgni asamt Gertrud sem er mjog fin. Vid syngjum alls konar misgafuleg log, eda vid tvaer syngjum og krakkarnir oskra ollu heldur... ;) Svo kennum vid teim stafrofid eda tolurnar og ad lesa og skrifa og reikna... Tad er lika misjafnt hvad tau fatta mikid af tvi sem vid segjum, sum bornin eru audvitad bara smaborn. Krakkarnir eru oll von tvi ad vera lamin med priki tegar tau eru otekk, baedi heima hja ser og i skolanum, tannig ad tad er svolitid erfitt ad fa tau til ad vera stillt an tess ad nota prik.. Eg myndi audvitad aldrei lemja tau en Gertrud er ansi dugleg vid tad :S.

Jaeja eg aetla ad drifa mig heim adur en myrkrid skellur a...

Var ad setja inn fullt af nyjum myndum! Tekkid a tvi gott folk.


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 12:08:45 / jungleboogie

Baunir

Maturinn herna er svo sem agaetur, gallinn er bara ad folk bordar tad sama i oll mal. Nuna erum vid bunar ad bua hja Mhamilawa fjolskyldunni i tvaer vikur og vid hofum fengid tad sama a hverju kvoldi. Brunar baunir i baunasosu med sodnu kali. Appelsina eda banani i eftirrett. Eina breytingin er ad stundum eru hrisgrjon med tessu og stundum er ugali, eins konar tykk mus ur mais. Stundum er sma kjot med, nokkrir riastorir kjotbitar sodnir i potti med ollu heila klabbinu, fitu, beinum og svo framvegis. Tad vaeri svo sem i lagi ef folk notadi hnifapor, en tad er ekki til sids herna. Ef tad eru hrisgrjon med matnum faum vid skeid, ef tad er ugali notum vid haegri hondina. Stundum er kjotid tyggjanlegt, stundum ekki.

Hadegismaturinn er med hinum kennurunum a Goodi Rice, litlum veitingastad hlidina skolanum. Tar er bodid upp a nakvaemlega tad sama. Sodid kal, hrisgrjon, tveir otyggjanlegir kjotbitar og brunar baunir i baunasosu. Stundum er haegt ad fa banana i stadinn fyrir hrisgrjon, hitada banana med tomat- og laukssosu. Tad er supergott. Annars er eg buin ad borda tessar baunir svo oft nuna ad eg er buin ad venjast teim.

Sturtan virkar ekki lengur. Kalt bad med vatni ur fotu er alls ekki slaemt...  ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 11:56:50 / jungleboogie

Welcome to the jungle

Fyrsta vikan byrjadi vel. Eg og Rikke voknum vid hanagal a hverjum morgni. Labba ut framhja litlu kofunum og haenunum tar sem allir nagrannarnir heilsa manni og spyrja hvernig madur hafi tad. Her telst tad mikill donaskapur ad heilsa ekki. Ef madur tarf ad spyrja einhvern hvad klukkan se er eins gott fyrir mann ad spyrja fyrst ekki bara hvernig vidkomandi hafi tad, heldur einnig hvernig oll fjolskyldan hans hafi tad! Folk er almennt ofurfelagslegt, og hefur alltaf tima til ad spjalla. Hvar sem vid forum er starad a okkur og folk hropar "mzungu!" sem tydir hvitingi. Stundum kallar folk mig Susonnu, tvi tad er einhver tattarod i sjonvarpinu herna med personu sem likist mer og heitir Susanna. Frekar spes.

Til ad komast i vinnuna tarf eg ad taka tvo dalla-dalla straeto. Tar er ekkert sem heitir personulegt rymi og avallt plass fyrir fleiri fartega... menn jafnt sem dyr. Tad er ekkert timaplan og teir fara heldur ekki alltaf somu leidina. A morgnana og serstaklega a milli 17-19 a kvoldin er ringulreid og umferdarteppa. Ta slaest folk bokstaflega og tredur hvort annad nidur til ad komast inn. Vid saum modur kasta hagratandi ungabarninu sinu inn um gluggann a dallanum, eins og til ad tryggja ser saeti, adur en hun kastadi sjalfri ser inn i tvoguna. Af hverju beid hun ekki bara eftir naesta vagni? Venjulega koma teir a fimm minutna fresti a daginn. Laugardagskvoldin eru vafasom. Ta er markadur i Kariakoo og allir dallarnir keyra tangad, sama hvad stendur a teim. A kvoldin er nefnilega ekkert eftirlit og dalla bilstjorinn og gaurinn sem tekur vid peningunum turfa ad graeda peninga, tannig ad teir keyra bara tangad sem flestir eru ad fara.

Eg sat i dalla um daginn. Gaur sem situr fyrir framan mig tekur upp simann sinn og segir: "Hi mom. I bailed myself out." Hun virtist ekki heyra i honum tvi hann endirtok tetta nokkrum sinnum, med sifellt haerri romi. " I bailed myself out of jail! I BAILED MYSELF OUT! I'm coming home now. See you." Eg helt fastar um toskuna mina eftir tetta.

Vid stelpurnar forum i vatnsskemmtigardinn Wet'n'Wild asamt strakunum fra TYC a laugardaginn. Tar var mjog gaman tangad til ad eg lenti i slysi. Eg sat a gummikut a fleygiferd nidur tegar eg se nokkra straka framundan sem sitja grafkyrrir i midri rennibrautinni, ekki spyrja mig af hverju. Eg klessti a oll hofudin teirra med andlitinu minu. Kem nidur med svaka blodnasir, krakkarnir komu hlaupandi med pappir og fara med mig inna sjukrastofu vatnsgardins. Eftir nokkra stund kemur "laeknir" sem taladi enga ensku. Hann virdist hafa miklar ahyggjur af haegri hendinni minni og fer ad hreinsa hana af hinni mestu alud. Vid horfdum hvort a annad og strakarnir utskyra fyrir honum a swahili ad tad se ekkert ad hendinni heldur se tad nefid sem se meitt. En hann virdist ekkert skilja og heldur bara afram. Ta akvedum vid ad liklega se betra ad fara a alvoru spitala.

Tegar vid komum tangad skodar laeknir mig en getur ekkert gert tvi ad sa sem ser um rontgenmyndatokur var i frii... Vid holdum a naesta spitala i grenndinni og eftir ad hafa bedid heillengi segir laeknirinn tar okkur ad rontgenlaeknirinn hafi farid heim klukkan 20. Vid litum a klukkuna. Hun var 20:01.

Eg for aftur naesta dag, og rontgenmynd var tekin. Ta gat laeknirinn samt ekki gert meira tvi hann sa ekkert a rontgen myndinni. Hann segir mer ad koma aftur daginn eftir til ad fa ct-scan.

Naesta dag beid eg allan daginn tangad til ad mer var sagt ad ct-scan velin teirra virki ekki. Ta var mer nog bodid. For a tridjudaginn a TMJ, spitala sem var mun betri. Tar fekk eg strax ct-scan og hitti mjog godan laekni sem vissi nakvaemlega hvad skyldi gera. I gaer for eg i sma adgerd, allt gekk vel nema ad sa sem gaf mer naeringu hitti ekki a aedina og vokvinn for ut i vefinn a hondinni. Hondin a mer er eins og uppblasinn gummihandski og mun vera tannig naestu daga... Afriskir spitalar sko... Mer var heldur ekki gefid neitt moskitonet ad sofa i og vaknadi med ca. 20 bit. En, eg er allavega utskrifud. :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 13:06:05 / jungleboogie

Teacher Hilda

Eg og Rikke erum fluttar til fjolskyldunnar okkar, vid buum i hverfi sem kallast Mabibo ekki langt fra midbae Dar es Salaam. Vid buum vid adeins meiri luxus en vid bjuggumst vid, erum med litid serhus! I husinu eru tvo herbergi, svefnherbergi og eldhus, asamt litlu badherbergi med alvoru sturtu og alvoru klosetti! (Vid attum alveg eins von a holu i jordinni eda klosettskal i golfinu eins og er a flestum stodum). Fjolskyldan sjalf er ekki einu sinni med sturtu, tau eru von ad skvetta a sig vatni ur bala og finnst tad mun betra. Herbergid okkar er mjog fint med skrifbordi, stol og fataskap. En vatnid er af skornum skammti a tessu svaedi. Vatnid ur krananum er salt grunnvatn og ad sjalfsogdu er ekkert heitt vatn. Uti i gardi standa storir vatnsdunkar sem safna regnvatni. I gaer tvodi eg sjalf oll fotin min i hondunum, upp ur koldu regnvatni med sma tvottaefni. Tad var spes. Eg er ekki viss um ad tau seu hrein eftir tetta. Eg hef to nogan tima til ad aefa mig... Eg er samt fegin ad vid hofum ekki of mikinn luxus, vid komum ekki til Afriku til ad dekrad yrdi vid okkur. Tvaer stelpur sem eru bunar ad vera herna i tvo manudi bua vid tvilikar luxusadstaedur ad taer hafa varla fengid neitt ut ur tvi ad vera herna. Taer eru med net heima hja ser og allt.

Fjolskyldan okkar er mjog fin, tau eru vingjarnleg og gestrisin. Tetta er menntafolk og tau tala oll mjog goda ensku fyrir utan Veroniku, hushjalpina. Heimilisfadirinn er lektor vid haskolann i Dar og modirin er lika utivinnandi. Tau eiga fjogur uppkomin born, tvaer daetur og tvo syni sem eru annad hvort flutt ad heiman eda vid nam annars stadar. Yngri dottirin er to heima i augnablikinu, hun er ad laera logfraedi. Eldri dottirin er gift og a tvaer litlar daetur, Atu og Rachel, sem eru stundum i possun heima hja okkur, tveggja og triggja ara. Hun er ad laera verkfraedi. Fraenka teirra byr lika tarna, hun heitir Sofia, er adeins eldri en vid og vinnur hja TYC, en tad eru samtokin sem vid eyddum mestum tima hja i Introvikunni og ta kynntumst vid henni agaetlega. Hun er mjog fin, aetlar bradum ad taka MA i trounarfraedi (development studies). 

Introvikan var ekki alveg eins og vid bjuggumst vid, tad var ekki buid ad plana mikid fyrir okkur ad gera. En vid vorum kynntar fyrir folkinu i TYC, sem er hid besta folk, og tokst ad skapa okkar eigin dagskra med teirra hjalp. Eftir ad hafa gert litid annad en ad hanga inni i herbergi i tvo daga baudst Anita, stelpa sem vinnur hja TYC til ad fara med okkur a markadinn i Ilala, sem er staersti second hand markadurinn i Dar. Risastort volundarhus med fullt af baedi fallegum og hormulega ofridum vorum. Eg keypti rosa flotta sko og trjar toskur fyrir samtals 600 kr!

I dag for eg i nyju vinnuna mina i fyrsta skipti. Tetta er nystofnadur, pinulitill skoli med 32 krokkum undir sex ara aldri og ca. tuttugu yfir sex ara sem turfa ekstra hjalp. Eg mun byrja a morgun ad kenna eldri krokkunum i viku tar sem litlu krakkarnir eru i frii tangad til a manudaginn. Kennslan fer fram i litlum, huggulegum skur. Tveir kennarar vinna tarna, ekki mikid eldri en eg og mjog finir badir tveir. Krakkarnir eru algjor krutt. Um leid og eg kom inn sogdu tau oll i kor: "Good morning teacher Hilda. How are you today?" Mer list bara vel a tetta. 


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 16:28:39 / jungleboogie

Komnar til Dar es Salaam

Dar es Salaam 

Flugum til Dar eldsnemma a sunnudagsmorguninn og sogdum bless vid hina krakkana :( Fjogur teirra foru heim til Danmerkur en trjar vinkonur okkar heldu til Uganda til ad byggja heilsugaeslustod fyrir folk med AIDS. Eg og trjar adrar stelpur, Mette, Heidi og Rikke, verdum i hofudborg Tanzaniu, Dar es Salaam, og munum kenna bornum i mismunandi skolum. Nuna buum vid i gesthusi Mellemfolkeligt Samvirke. Mette og Heidi i stora herberginu og eg og Rikke i litlu kompunni.. Eg er alltaf svo svinheppin ;). Tad goda er hins vegar ad her er heitt vatn i sturtunni! Haleluja! Her verdum vid i eina viku a medan verid er ad kynna okkur fyrir borginni og hjalparstarfinu.

Eg er komin med furdulegan augnsjukdom sem kallast Red Eye Infection. Haegra augad mitt er rautt. An grins. Eg er eins og Drakula greifi. For til laeknis i gaer og fekk augndropa og krem, en blodid i auganu verdur ekki farid fyrr en eftir 3 vikur minnst :(. Fyrst verdur augad vist gult eins og groandi sar og svo loksins hvitt aftur.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 12:36:44 / jungleboogie

Nungwi

Um seinustu helgi forum vid til Nungwi, sem er litill baer nyrst a eyjunni med frabaera strond. Vid gistum a hotelinu Jambo Brothers (Komid saelir, braedur) sem var vaegast sagt afslappad. Vid turftum hvorki ad tekka inn ne ut og enginn starfsmadur vissi nakvaemlega hvad vid attum ad borga. Hakuna matata, pole pole...

Tessi baer er aedislegur, fullt af litlum palmakofaborum, veitingastodum og litlum budum medfram strondinni, afsloppud stemning. Tjonustan a veitingastodunum var frekar haegfara og pizzurnar brogdudust ekkert alltof vel, en grilludu sjavarrettirnir voru aedi. A laugardeginum for eg med 4 stelpum i siglingu til Tumbatu eyju. Baturinn var med taki sem vid lagum a i solbadi i 2 tima i hadeginu. Ekki snidugt. Vid grilludum okkur gjorsamlega. Nuna er eg ordin brun sem betur fer, en bakid mitt er enn ad flagna, eg get bokstaflega togad hudina af :s.

Vid hoppudum uti til ad skoda fiskana en lentum i slimugri marglyttutvogu og urdum ad flyja aftur uppi batinn. Svo forum vid a annan stad tar sem voru engar marglyttur og fullt af marglitudum fiskum i stadinn. Mennirnir sem sigldu med okkur foru svo i land og eldudu handa okkur king fish med engiferi, hefdbundid braud/ponnukaka sem nefnist chipati og ferskir ananasbitar voru i eftirrett. Faranlega gott.

Um kvoldid komu swahili kennarinn okkar hann Mudi og bartjonninn okkar Vegas asamt tveimur vinum sinum i heimsokn til okkar og keyrdu okkur til Kendwa Rocks stutt fra, tar sem svaka party var i gangi. Okkur tokst ad troda okkur ollum, 10 manneskjum, inn i litinn jeppa fyrir 5 manns! Trir menn i skottinu og restin ona hver annarri inni bil. Tetta hefdi svosem verid ekkert mal, ef vegurinn hefdi verid adeins betri. En tetta var holottasti vegur i heimi... Tad fyndna var ad vid vorum stoppud af logreglumanni a leidinni. Teir standa a akvednum stodum ut um alla eyju og stoppa alla vegfarendur, en enginn veit af hverju, teir kikja sjaldan a okuleyfi. Oftast spjalla teir adeins vid bilstjorann og hleypa manni svo i gegn. Tarna vorum vid alveg viss um ad loggan myndi segja eitthvad, til hvers eru tessar loggur ad stoppa alla bila ef tad er ekki til ad stoppa 10 manns i 5 manna bil? En nei nei, madurinn spurdi bara bilstjorann hvert vid vaerum ad fara. Vid erum ad fara i party sagdi hann. Ok, sagdi logreglumadurinn og hleypti okkur afram.

Loksins komum vid til Kendwa eftir to nokkud hoss, flest med tad sem danir kalla braekfornemmesler... Fyrst var spilud hefbundin taarab tonlist og alls konar fjollistamenn leku listir synar uppa svidi. Eftir syninguna var djamm og megastud.

Verd ad haetta nuna, vona ad allir hafi tad gott!

Sakna ykkar...

Hildur

PS. Tad eru komnar nokkrar myndir inna siduna, smellid a myndir til vinstri...

Hopurinn minn


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 15:45:04 / jungleboogie

Hakuna matata

Hr. P'afugl 

Nuna er eg loksins komin i almennilega tolvu i Stone Town, en hun er samt frekar haegfara. Allt tekur sinn tima i Afriku :) ( Akkurat stadur fyrir mig:)). Eitt mest notada oratiltaekid her er "pole pole" ... sem getur baedi tytt "afsakid" og "slokum adeins a...". Folkid her er rosalega vinalegt, hvar sem madur kemur kalla allir jambo eda mambo a eftir manni, sem tydir hallo, eda karibuni (velkomin). Um helgina forum vid til Stone Town og akvadum ad gista tar i eina nott. Vid sigldum til Prison Island (sem nefnist svo vegna tess ad a traelatimanum var hun notud sem "geymsla" fyrir traela). Eyjan er algjor paradis, taer sjor, hvitur sandur og palmatre. Tad fyrsta sem vid heyrdum er vid stigum a land voru undarlegar, langdregnar stunur. Vid veltum lengi fyrir okkur hvada dyr gaefi fra ser svona hljod, tangad til ein stelpan ur hopnum, Anne, faer auga a risastora skjaldboku bak vid runnana, grafkyrr ofan a annarri risaskjaldboku... Eftir tetta skemmtilega atvik fengum vid okkur pizzu a eina veitingastadnum a eyjunni. I midri maltid valsar pafugl inn..! Alltaf gaman ad fa ta i heimsokn. Vid eyddum eftirmiddeginum vid tad ad skoda risaskjaldbokurnar og sleikja solina a strondinni, tangad til vid sigldum aftur til Stone Town.

Um kvoldid forum vid ut ad borda a Mercury's (eftir Freddie sjalfum, sem olst her upp). Tar var fin stemning, hyggeligt og godur matur asamt (frekar spes) live tonlist og tilheyrandi afriskum mjadmahreyfingadansi. Eftir matinn var planid ad kikja adeins ut a lifid. Vid vorum svo heppnar ad hitta tvo Sudur-Afriska straka sem hafa buid her i nokkur ar og gatu synt okkur hvar alvoru heimamenn skemmta ser... Vid komum inn i litla handverksbud, vorum bedin um 1000 tansaniska shillinga (50 kall) og fengum stimpil a hondina. Svo opnast hurd ut i storan bakgard tar sem fullt af folki var ad dansa vid dundrandi reggae tonlist. Tad var frabaer stemning tarna. Vid hittum alla uppatrengjandi gotuseljarana sem elta okkur a rondum a daginn med alls konar varning, en tarna voru allir gladir og afslappadir og voru bara ad dansa. Seinna forum vid a annan bar sem var ekki alveg eins lokal, heldur meira vestraenn, med vestreanni tonlist. Tar hittum vid alls kyns skemmtilegar typur. Dyravordinn med meira a brjostkassanum en vid allar til samans, masai-mann i fullum skruda med risastora, glitrandi eyrnalokka og ormjoan gaur sem dansadi brjaladan Michael Jackson allt kvoldid. Rosa gaman :)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 13:56:07 / jungleboogie

Ladies Night

 Stelpa i Paje

Jaeja, nu erum vid buin ad vera herna i viku og loksins komin helgi ;) Vid erum buin ad fara i svokalladan Spice Tour tar sem  vid keyrdum inn i skoginn og hittum vidkunnanlegan kryddbonda sem syndi okkur alls konar plontur og tre: kakobaunatre, ananasplontu, chiliplontu, kanel, bananatre og margt fleira. I dag heimsottum vid FAWE, Forum for African Women's Education. Tad er stofnun sem vinnur i morgum Afrikulondum ad tvi ad stelpur fai goda menntun ekki sidur en strakar. Konunni tar leist ekkert a ad vid vaerum ad taka okkur hle fra nami ;). Allt gott ad fretta, nema kannski ad vatnsdaela baejarins er brotin svo okkur var bannad ad tvo har i nokkra daga, og mattum bara tvo okkur med vatni ur floskum. Eg hef aldrei a aevinni verid jafn klistrud! En... tad er komid i lag nuna :) Eg verd ad hlaupa, reyni ad fa tessar myndir inn fljott, en tolvurnar eru bara svo haegfara herna..


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 15:34:43 / jungleboogie

Jambo

Nuna eru allir nema eg og ein onnur stelpa buin ad fa gubbupest/nidurgang... Gaman ad tessu. Su sem var mest veik turfti ad fara a spitalann og fa naeringu i aed. Nuna er ollum sem betur fer batnad og kennslan er lika hafin. I gaer laerdum vid Swahili og i dag um menninguna a Zanzibar, einn masaiinn hoppadi svolitid fyrir okkur, tad var spes... En eg hef ekki meiri tima i tolvunni tar sem tetta er mjog takmarkad herna, skrifa meira tegar eg get...

Kvedja Hildur


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 07:47:26 / jungleboogie

Karibu Zanzibar

Utsynid fra husinu okkar... ahh... 

Jaeja, tha erum vid loksins komin til Zanzibar. Ferdin gekk vel og allt eftir aaetlun, lentum i Dar es Salaam kl. 7 i gaermorgun og flugum svo med einkaflugstjora i pinulitilli rellu yfir til Zanzibar. Fra litla flugvellinum keyrdum vid i leigubil eftir vegi sem var vaegast sagt a floti, til baejarins okkar a austurstrondinni, Paje. Nuna by eg i hvitu husi med strathaki vid strondina, umkringd palmatrjam og kokoshnetum, sef i efri koju med hvitt net til ad halda malariuflugum i burtu.

Nokkrir menn af maasai-aettbalknum vakta husid okkar. Teir eru klaeddir i hefdbundin litrik teppi og ganga um med spjot, en svo heyrist "bip" undan teppinu og ta er gemsinn dreginn fram :).

I dag aetlum vid oll saman ad fara til Stone Town. Tad er gamall sogufraegur arababaer sem var vidskiptahofn araba, afrikana og asiubua i margar aldir. Svo aetlum vid liklega i kofunarferd bradum, ad skoda koralla og litrika fiskinn sem a heima i hellunum vid strondina. Tad er buid ad vera vesen med ad fa svokallad student visa. Vid fengum timabundid turistaleyfi a flugvellinum en kennslan getur ekki hafist fyrr en vid faum namsleyfid, tannig ad henni gaeti ordid ad fresta um nokkra daga. Kennarinn okkar, Pernille, vonar ad kennslan hefjist i seinasta lagi a midvikudaginn. I millitidinni aetlum vid ad reyna ad nyta dagana sem best og skoda eyjuna!

Vona ad allir hafi tad gott heima!

Hildur


» 10 hafa sagt sína skoðun